Vinaleg vínstofa í hjarta Reykjavíkur
- 
						Verið velkomin á Konsúlat Wine Room. 
 Rólegt og notalegt andrúmsloftið er frábært fyrir dýrindis vín sem er parað við ljúffenga rétti af öllum stærðum og gerðum. Í vínstofu konsúlsins er á boðstólum úrval hágæða vína, sérvaldir kokteilar ásamt skemmtilegum réttum. Veitingastaðurinn er staðsettur í hinu sögulega Hafnarstræti, í miðborg Reykjavíkur – fullkominn staður til að slaka á, njóta og gleyma stund og stað.